Tónskólinn á Tröllaskaga, beiðni um viðauka vegna veikindalauna.

Málsnúmer 2001111

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 638. fundur - 04.02.2020

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra fræðslu,- frístunda- og menningarmála dags. 30.01.2020 þar sem óskað er eftir viðauka við launaáætlun Tónlistarskólans á Tröllaskaga 2020 vegna veikinda starfsmanns. Hlutur Fjallabyggðar er um 48% eða kr. 311.066.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr.2/2020 við launaáætlun TÁT 2020 kr. 311.066 sem færist á lið 04510-9291, sem verður mætt með lækkun á handbæru fé.