Samræmd könnunarpróf í 4.-7.bekk haust 2019

Málsnúmer 1911063

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 79. fundur - 04.12.2019

Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar sat undir þessum lið.
Skólastjóri fór yfir niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4. og 7. bekk haustið 2019. Af fjórum prófum eru niðurstöður þriggja yfir meðaltali á landsvísu.