Erindi vegna viðgerðar á kirkjutröppum og ósk um bekk við styttu af Gústa

Málsnúmer 1907015

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 613. fundur - 25.07.2019

Lagt fram erindi Kristjáns L. Möllers, dags. 07.07.2019 varðandi lagfæringu á kirkjutröppum á Siglufirði og ósk um bekk við styttu af Gústa Guðsmanni.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar varðandi lagfæringu á kirkjutröppum á Siglufirði en bendir á að bekkur hefur þegar verið settur við styttu af Gústa Guðsmanni.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 620. fundur - 17.09.2019

Á 613. fundi bæjarráðs þann 25.07.2019 óskaði bæjarráð eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar vegna erindis Kristjáns L. Möller varðandi lagfæringar á kirkjutröppum á Siglufirði og ósk um bekk við styttu af Gústa Guðsmanni.

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar 10.09.2019 þar sem fram kemur að viðgerð á snjóbræðslu í kirkjutröppum líkur í október. Verið er að smíða ljós í handrið sem sett verður upp í haust. Handrið verður svo lakkað þegar veður leyfir. Bekkur við styttu af Gústa Guðsmanni var kominn á sinn stað í júlí.

Bæjarráð samþykkir framkomið vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar.