Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðaralagna í Ólafsfirði

Málsnúmer 1905057

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 606. fundur - 28.05.2019

Lagt fram erindi Steinmars H. Rögnvaldssonar fh. Tengis hf. dags. 21.05.2019 þar sem sótt er um framkvæmdarleyfi vegna lagningu ljósleiðara um Ólafsfjörð sumarið 2019. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í maí og verði lokið í desember 2019 og endanlegum frágangi verði lokið vorið 2020.

Bæjarráð samþykkir framkvæmdarleyfið og felur deildarstjóra tæknideildar að fylgja málinu eftir með tilliti til frágangs vegna jarðvegsvinnu og malbiks og gefa bæjarráði skýrslu þar um.