Malbik vantar á bút við Menntaskólann á Tröllaskaga

Málsnúmer 1810108

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 578. fundur - 30.10.2018

Lagt fram erindi Láru Stefánsdóttur skólameistara Menntaskólans á Tröllaskaga (MTR) dags. 25.10.2018 þar sem óskað er eftir því við sveitarfélagið að lokið verði hið fyrsta við að malbika bút sem liggur frá malbikuðum vegi milli skólanna tveggja að móttökueldhúsi Menntaskólans.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til gerðar fjárhagsáætlunar 2019.