Úrbætur vegna hraðaksturs á Hvanneyrarbraut, Siglufirði.

Málsnúmer 1810047

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 233. fundur - 07.11.2018

Lagður fram undirskriftarlisti þar sem íbúar við norðurhluta Hvanneyrarbrautar og nágrennis fara fram á við bæjaryfirvöld og Vegagerðina að þau láti athuga hraðakstur ökutækja í götunni og geri viðeigandi úrbætur.
Nefndin þakkar ábendinguna og felur tæknideild að fara í samstarf við Vegagerðina í að finna leið að úrbótum til að draga úr hraðakstri við Hvanneyrarbraut.