Skólabyrjun í Leikskóla Fjallabyggðar haust 2018

Málsnúmer 1808038

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 58. fundur - 20.08.2018

Undir þessum lið sat Olga Gísladóttir skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar.

Skólastjóri fór yfir upphaf skólaárs, aðstæður og starfsmannamál. 63 nemendur eru á Leikskálum Siglufirði og 35 nemendur á Leikhólum Ólafsfirði. Áætlað er að um áramót verði nemendur samtals 110. Þá eru 33 starfsmenn í 30 stöðugildum.