Ný og breytt lög um félagsþjónustu sveitarfélaga er taka gildi 1.október 2018 - notendaráð

Málsnúmer 1806069

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 562. fundur - 26.06.2018

Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 18. júní 2018 er varðar ný og breytt ákvæði um notendaráð á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og taka gildi þann 1. október 2018.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til deildarstjóra félagsmáladeildar.