Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám - Verksmiðjureit SRN Siglufirði

Málsnúmer 1806065

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 227. fundur - 20.06.2018

Lögð fram umsókn SR-Vélaverkstæðis fyrir hönd Rauða krossins við Eyjafjörð, dagsett 19.júní 2018. Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir 20 feta gám vegna fatasöfnunarverkefnis. Staðsetning er á lóðinni Verksmiðjureit SRN skv. meðfylgjandi mynd.
Nefndin samþykkir stöðuleyfi en staðsetning verði í samráði við tæknideild.