Fyrirspurn Gnýfara vegna deiliskipulags frístundasvæðis vestan Óss í Ólafsfirði

Málsnúmer 1806004

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 227. fundur - 20.06.2018

Lagt fram til kynningar erindi Skipulagsstofnunar vegna fyrirspurnar hestamannafélagsins Gnýfara um deiliskipulag frístundasvæðis vestan Óss í Ólafsfirði. Skipulagsstofnun kemur þeirri ábendingu á framfæri við sveitarfélagið að það framfylgi deiliskipulaginu, nema sveitarfélagið telji þörf á að breyta deiliskipulaginu.