Vegleg sýningarskrá fyrir sýninguna "Húsin í bænum"

Málsnúmer 1805029

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 556. fundur - 15.05.2018

Tekið fyrir erindi frá Siglfirðingafélaginu þar sem Fjallabyggð er boðin til kaups sýningarskrá sem útbúin hefur verið í tengslum við sýninguna "Húsin í bænum". Sýningin verður haldin í Bláa húsinu á Siglufirði þann 19. maí nk. Sýningarskráin kostar 2.000 kr.

Bæjarráð samþykkir að kaupa 10 sýningarskrár, að upphæð 20.000 kr. sem færist af lið 21550-4913.