Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 2. fundur - 5. apríl 2018
Málsnúmer 1804001F
Vakta málsnúmer
-
Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 2. fundur - 5. apríl 2018
Fjallabyggð sótti um styrk í Lýðheilsusjóð fyrir verkefnið Heilsueflandi samfélag og fékk 500.000 kr.
Stýrihópurinn fagnar mjög þessari styrkveitingu.
Bókun fundar
Afgreiðsla 2. fundar stýrihóps heilsueflandi samfélags staðfest á 159. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 2. fundur - 5. apríl 2018
Björn Þór Ólafsson fulltrúi eldri borgara kynnti verkefnið Að brúka bekki sem til stendur að Fjallabyggð taki þátt í. Verkefnið snýst um að velja gönguleiðir sem henta eldri borgurum og öðrum íbúum. Á þessum gönguleiðum eru settir hvíldarbekkir með 250 metra millibili. Bekkjum í eigu Fjallabyggðar þyrfti ef til vill að fjölga. Til eru dæmi um að fyrirtæki og árgangar gefi hvíldarbekki sem eru merktir viðkomandi fyrirtæki eða árgangi.
Bókun fundar
Afgreiðsla 2. fundar stýrihóps heilsueflandi samfélags staðfest á 159. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 2. fundur - 5. apríl 2018
Rætt um ýmsar hugmyndir sem hægt er að vinna að í tengslum við Heilsueflandi samfélag. Næstu skref eru að vinna að þarfagreiningu í samfélaginu. Byrjað verður á að skoða Heilsuvísa Landlæknisembættisins. Nú eru tveir þeirra tilbúnir: Vellíðan án áfengis, annarra vímuefna og tóbaks og Vellíðan með hollu mataræði.
Bókun fundar
Afgreiðsla 2. fundar stýrihóps heilsueflandi samfélags staðfest á 159. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.