Umsókn um byggingarleyfi-útlitsbreytingar á Fossvegi 23 Siglufirði

Málsnúmer 1802080

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 223. fundur - 07.03.2018

Lagt fram erindi dagsett 19. febrúar 2018 þar sem Jón Heimir Sigurbjörnsson sækir um leyfi til útlitsbreytinga á húseign sinni við Fossveg 23 á Siglufirði. Breytingarnar felast í að skipta um og breyta öllum gluggum og hurðum á efri hæð og klæða húsið að nýju. Meðfylgjandi eru teikningar af fyrirhuguðum breytingum eftir Jón Steinar Ragnarsson.
Samþykkt
Erindi samþykkt.