Umsókn um byggingarleyfi - Vetrarbraut 14 Siglufirði

Málsnúmer 1802058

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 223. fundur - 07.03.2018

Lagt fram erindi dagsett 15. febrúar 2018 þar sem Ólafur Sigurðsson fyrir hönd SR-Vélaverkstæðis hf., óskar eftir leyfi fyrir uppsetningu flóttaleiðar frá efri hæð á austurhlið Vetrarbrautar 14 Siglufirði. Um er að ræða svalir og stiga samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt
Erindi samþykkt.