Upplýsingamiðstöðvar Fjallabyggðar. Fjöldi ferðamanna 2017.

Málsnúmer 1802010

Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 40. fundur - 07.02.2018

Forstöðumaður Bóka- og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar, Hrönn Hafþórsdóttir, sat undir þessum lið.

Forstöðumaður fór yfir tölur yfir fjölda ferðamanna sem komu á upplýsingamiðstöðvar sveitarfélagsins árið 2017. Samtals komu 3805 ferðamenn af a.m.k. 42 þjóðernum í upplýsingamiðstöðina á Siglufirði og 435 ferðamenn af a.m.k. 28 þjóðernum í uppýsingamiðstöðina í Ólafsfirði.