Ósk um styrk í formi afnota af íþróttahúsi fyrir styrktarmót í blaki.

Málsnúmer 1710107

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 527. fundur - 07.11.2017

Undir þessum lið sat Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.

Gunnlaugur Guðleifsson formaður Blakfélags Fjallabyggðar sækir um styrk fyrir hönd undirbúningshóps um styrktarmót í blaki í formi afnota af íþróttamiðstöð Fjallabyggðar á Siglufirði. Mótið yrði haldið á opnunartíma íþróttamiðstöðvarinnar.

Bæjarráð samþykkir að verða við styrkbeiðninni og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála afgreiðslu málsins.