Vörugjöld bílaleigubíla og skoðun á skattbyrgði bílaleigufyrirtækja

Málsnúmer 1710062

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 524. fundur - 24.10.2017

Lagt fram til kynningar erindi frá Samtökum ferðaþjónustunnar, dags. 13. október 2017, þar sem vakin er athygli sveitarstjórnarmanna á breytingum á vörugjöldum bílaleigubíla og skattbyrði bílaleigufyrirtækja. Telja samtökin að líklegt sé að ferðamönnum fækki í dreifðari byggðum landsins í kjölfar hækkunarinnar og brýna þau sveitarstjórnarmenn til þess að ræða málið við frambjóðendur til Alþingis.