Umsókn um stækkun lóðarinnar Hafnargötu 4, Siglufirði

Málsnúmer 1710051

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 218. fundur - 16.10.2017

Undir þessum lið vék Guðmundur Skarphéðinsson af fundi.

Tekið fyrir erindi Vernharðs Skarphéðinssonar, dagsett 12.október 2017, þar sem óskað er eftir stækkun lóðarinnar Hafnargötu 4 til norðurs að Hafnargötu 2.
Samþykkt
Erindi samþykkt. Tæknideild falið að gera breytingu á lóðarblaði fyrir Hafnargötu 4.