Umsókn um byggingarleyfi - Lindargata 22 Siglufirði

Málsnúmer 1709046

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 218. fundur - 16.10.2017

Tekið fyrir erindi ÓHK trésmíðar ehf. f.h. húseiganda Lindargötu 22, dagsett 13. september 2017. Óskað er eftir leyfi til að lagfæra stigapall fyrir framan húsið í samræmi við meðfylgjandi teikningu. Einnig lagt fram samþykki nágranna við Lindargötu 20 og 24.
Samþykkt
Erindi samþykkt.