Ósk um heimild til að setja listaverk á norðurvegg skólahúsnæðisins

Málsnúmer 1707016

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 509. fundur - 11.07.2017

Lögð fram beiðni Láru Stefánsdóttur, skólameistara Menntaskólans á Tröllaskaga, um leyfi bæjaryfirvalda fyrir því að sett verði vegglistaverk á norðurvegg skólans. Verkið verður unnið af Jeanne Morrison listamanna sem unnið hefur að gerð vegglistaverka í Ólafsfirði að undanförnu.

Bæjarráð samþykkir að heimila gerð vegglistaverksins.