Gögn um húsnæðisstofn sveitarfélagsins

Málsnúmer 1707004

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 509. fundur - 11.07.2017

Lagt fram til kynningar erindi frá Íbúðalánasjóði þar sem fram kemur að sjóðurinn hefur tekið saman upplýsingar um húsnæðisstofn allra sveitarfélaga á Íslandi. Gögnin eru sveitarfélögum aðgengileg til vinnu við gerð húsnæðisáætlana.