Beiðni um umsögn vegna umsóknar Sjómannafélags Ólafsfjarðar um tímabundið tækifærisleyfi

Málsnúmer 1705036

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 501. fundur - 16.05.2017

Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dags. 11. maí 2017 um umsögn Fjallabyggðar um tækifærisleyfi til skemmtanahalds og sölu áfengis vegna hátíðarhalda Sjómannafélags Ólafsfjarðar í Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar um sjómannadagshelgina 9.-11. júní 2017.
Bæjarráð samþykkir tækifærisleyfið fyrir sitt leyti.