Fráveita Siglufirði - 2017

Málsnúmer 1703071

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 494. fundur - 28.03.2017

Lögð fram beiðni deildarstjóra tæknideildar um að halda opið útboð vegna framkvæmda við fráveitu á Siglufirði. Um er að ræða útrásarbrunn og útrásarlögn á Leirutanga á Siglufirði.
Bæjarráð samþykkir beiðni deildarstjóra tæknideildar.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 496. fundur - 10.04.2017

Tilboð í verkefnið 'Fráveita Siglufirði 2017' voru opnuð 4.4.
Eftirfarandi tilboð barst:
Bás ehf. 23.026.810
Kostnaðaráætlun 26.108.500
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Bás ehf.