Samningur um talmeinaþjónustu 2016-2018

Málsnúmer 1609037

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 465. fundur - 16.09.2016

Lagt fram minnisblað deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála, Kristins J. Reimarssonar, dagsett 9. september 2016 er varðar samning vegna talmeinaþjónustu.
Einnig voru lögð fram drög að samningi við talmeinafræðingana Eyrúnu Svövu Ingvadóttur og Sonju Magnúsdóttur.

Á fund bæjarráðs kom deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála, Kristinn J. Reimarsson.

Bæjarráð samþykkir drög að samningi við talmeinafræðingana Eyrúnu Svövu Ingvadóttur og Sonju Magnúsdóttur.