Yfirbreiðsla á sundlaugina í Ólafsfirði

Málsnúmer 1609034

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 465. fundur - 16.09.2016

Tekin fyrir beiðni forstöðumanns Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar, dagsett 9. september 2016, um endurnýjun á yfirbreiðslu fyrir sundlaugina í Ólafsfirði.

Á fund bæjarráð komu deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála, Kristinn J. Reimarsson og deildarstjóri tæknideildar, Ármann V. Sigurðsson.

Bæjarráð samþykkir endurnýjun yfirbreiðslu og vísar til viðhaldsáætlunar næsta árs.