Íbúðarhúsnæði í Fjallabyggð

Málsnúmer 1609030

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 465. fundur - 16.09.2016

Lögð fram samantekt tæknifulltrúa á íbúðarhúsnæði í Fjallabyggð sem auglýst er á netinu til skammtímaleigu.

Bæjarráð felur tæknideild að senda eigendum auglýsts íbúðahúsnæðis bréf þar sem þeir eru hvattir til að sækja um leyfi til sölu gistingar og að álagningu fasteignaskatts verði breytt á þann veg að um sé að ræða atvinnuhúsnæði.