Suðurgata 28 - Frágangur á bakka

Málsnúmer 1608014

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 204. fundur - 10.08.2016

Fyrirspurn fulltrúa eiganda að Suðurgötu 28, Propx sf. til skipulags- og umhverfisnefndar varðandi bókun bæjarráðs frá 24.mars 2015 er varðar stoðvegg við lóðarmörk.

Nefndin óskar eftir umsögn tæknideildar vegna málsins.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 205. fundur - 01.09.2016

Umsögn deildarstjóra tæknideildar vegna frágangs á bakka við Suðurgötu 28 lögð fram. Í henni kemur fram að samþykkt fyrir frágangi á bakka á kostnað Fjallabyggðar hafi verið byggð á röngum forsendum.