Beiðni um umsögn vegna umsóknar Allans ehf um tækifærisleyfi í tilefni af Síldarævintýri

Málsnúmer 1607044

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 457. fundur - 27.07.2016

Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 27. júlí 2016, er varðar umsögn um tækifærisleyfi fyrir Allann ehf, Aðalgötu 30 580 Siglufirði. Í tilefni af Síldarævintýrinu á Siglufirði er sótt um lengri opnun 28. júlí til 1. ágúst 2016:
Fimmtudagskvöld/aðfaranótt föstudags til kl. 03:00, aðfaranótt laugardags til kl. 05:00 og aðfaranótt sunnudags til kl. 05:00
og aðfaranótt mánudags til kl. 05:00.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.