Beiðni um lagfæringu á gangstétt

Málsnúmer 1606059

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 202. fundur - 06.07.2016

Guðný Helga Kristjánsdóttir sendir inn beiðni um að partur af gangstétt við Túngötu verði löguð og að fyllt verði upp í rennu milli götu og gangstéttar.

Nefndin tekur jákvætt í erindið og beinir því til tæknideildar að endurnýja gangstéttina ef að það rýmist innan fjárheimilda 2016 að öðrum kosti vísað til fjárhagsáætlunar 2017.