Umsókn um leyfi til að reisa hænsnahús og halda hænur á lóð umsækjanda Hverfisgötu 3 Siglufirði

Málsnúmer 1605066

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 201. fundur - 14.06.2016

Umsókn um leyfi til að reisa hænsnahús og halda hænur á lóð umsækjanda Hverfisgötu 3 Siglufirði.

Nefndin getur ekki samþykkt erindið nema skriflegt samþykki allra aðliggjandi lóðarhafa liggi fyrir. Erindinu er því hafnað.