Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi - Grái turninn ehf

Málsnúmer 1604058

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19.04.2016

Undir þessum dagskrárlið vék Sólrún Júlíusdóttir af fundi.
Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 6. apríl 2016, er varðar umsögn um nýtt rekstrarleyfi til sölu gistingar og sölu veitinga að Aðalgötu 10, 580 Siglufirði, áður Gistihúsið Hvanneyri.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.