Ferð ráðgjafarnefndar til Siglufjarðar 24. - 25. maí nk.

Málsnúmer 1604049

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19.04.2016

Lögð fram drög að dagskrá ferðar ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Akureyrar og Siglufjarðar 24. - 25. maí.

Ráðgjafarnefndin og starfsmenn sjóðsins óska eftir að fá að hitta fulltrúa bæjarfélagsins á fundi fyrir hádegi 25. maí.

Bæjarráð samþykkir að taka á móti fulltrúum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.