Fjallabyggð fráveita 2016, vélbúnaður skolpdælubrunna

Málsnúmer 1604038

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19.04.2016

12. apríl voru opnuð tilboð í verkið Fjallabyggð, fráveita 2016, skolpdælubrunnar, vél-, raf- og stjórnbúnaður.

Varma og vélaverk ehf. bauð kr. 21.294.381,- og
Áveitan ehf. kr. 18.985.200,-.

Kostnaðaráætlun var kr. 24.860.000,-.

Bæjarráð leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Áveituna ehf.