Starf skjalavarðar við Héraðsskjalasafn Fjallabyggðar

Málsnúmer 1602004

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 430. fundur - 02.02.2016

Lögð fram beiðni forstöðumanns bóka- og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar um ráðningu í starf skjalavarðar, þar sem núverandi skjalavörður hefur sagt upp starfinu.

Bæjarráð samþykkir beiðni forstöðumanns bókasafnsins og þakkar Brynju Hafsteinsdóttur góð störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.