Styrkumsóknir 2016 - Fasteignaskattur félagasamtaka

Málsnúmer 1510022

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 439. fundur - 05.04.2016

Lagðar fram til kynningar umsóknir félaga og félagasamtaka um styrki til greiðslu fasteignaskatts.
Samtals eru umsóknir að upphæð kr. 3.031.122.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 447. fundur - 01.06.2016

Á 439. fundi bæjarráðs, 5. apríl 2016, voru lagðar fram til kynningar umsóknir félaga og félagasamtaka
um styrki til greiðslu fasteignaskatts.
Samtals voru upphæðir fasteignaskatts sem tengdust umsóknum kr. 3.031.122.
Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins, þar sem nánari upplýsingar vantaði frá nokkrum umsækjendum.

Lagt fram minnisblað deildarstjóra fjármála og stjórnsýslu.

Bæjarráð samþykkir umsóknir félaga og félagasamtaka að upphæð kr. 2.381.480

Umsókn Sigurhæða ses er vísað til næsta fundar bæjarráðs, þar sem umfjöllun um málefni félagsins verða til umræðu.