Tjaldsvæðið í Ólafsfirði

Málsnúmer 1506035

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 185. fundur - 10.06.2015

Tæknideild óskar eftir heimild nefndarinnar til að fjarlægja runna á tjaldsvæðinu í Ólafsfirði vegna framkvæmda sem þar er í gangi. Tæknideild mun í framhaldi hanna ný skjólbelti á tjaldsvæðinu.

Erindi samþykkt.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 397. fundur - 16.06.2015

Tekið fyrir erindi frá Bolla og bedda ehf, sent í tölvupósti 8. júní 2015, þar sem m.a. er farið á leit við bæjaryfirvöld að setja upp upplýsingaskilti við tjaldsvæðið í Ólafsfirði til útskýringar vegna yfirstandandi framkvæmda.

Samkvæmt upplýsingum deildarstjóra tæknideildar hefur verið brugðist við erindinu.