Nýtt verð á matarbökkum HSN til félagsþjónustu sveitarfélaga

Málsnúmer 1506014

Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 91. fundur - 03.09.2015

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hefur tilkynnt félagsþjónustum sveitarfélaga á Norðurlandi um 50% hækkun á söluverði matarbakka til félagsþjónustu frá og með 1. júlí 2015, úr 700 kr. í 1.050 kr.

Fjallabyggð kaupir matarbakka af HSN fyrir eldri borgara og öryrkja á Siglufirði og hádegismat fyrir dagþjónustu aldraðra í Skálarhlíð á Siglufirði.