Fundargerðir Starfshóps um úthlutun leiguíbúða 2015

Málsnúmer 1504013

Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 88. fundur - 17.04.2015

Lagðar fram fundargerðir starshóps um úthlutun leiguíbúða frá 20. mars og 10. apríl 2015. Í fundargerð starshópsins fra 20. mars s.l. er lagt til að eignarmörk vegna umsókna um leiguhúsnæði hjá Fjallabyggð taki mið af viðmiðunarupphæð sem velferðarráðuneytið ákveður fyrir afgreiðslu húsaleigubóta, sem er kr. 6.983.000 fyrir árið 2015, í stað fyrir kr. 4.607,223. Félagsmálanefnd samþykkir tillögu starfshópsins fyrir sitt leyti.

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 89. fundur - 29.05.2015

Fundargerð úthlutunarhóps frá 24.04.2015, lögð fram til kynningar.

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 95. fundur - 21.01.2016

Fundargerð úthlutunarhóps frá 20.11.2015, lögð fram til kynningar.