Samstarfssamningur við Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar

Málsnúmer 1404072

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 9. fundur - 06.05.2014

Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir að vinna verði sett af stað við gerð samstarfssamnings milli Fjallabyggðar og UÍF. Markmið samningsins verði m.a. að auka gæði íþróttastarfs í Fjallabyggð, vinna að heilsueflingu innan bæjarfélagsins, efla forvarnarstarf íþróttafélaganna og efla samstarf og samráð UÍF og Fjallabyggðar.