Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013

Málsnúmer 1312001F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 95. fundur - 12.12.2013

Sigurður Hlöðvesson fulltrúi í skipulags- og umhverfisnefnd, gerði grein fyrir fundargerð.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013
Undir þessum lið mætti Þorsteinn Ásgeirsson á fund nefndarinnar og gerði grein fyrir hugmyndum sínum er varðar að útbúa minigolf í Ólafsfirði. Hönnun brauta verður sögutengd Tröllaskaga frá Akureyri til Hóla í Hjaltadal. Fyrirhuguð staðsetning yrði á svæðinu milli bókasafnsins og grunnskólans.

Nefndinni líst vel á þessar hugmyndir og telur að þær falli vel að hugmyndum um gerð Tröllagerðis og samþykkir fyrirhugaða staðsetningu austan við bókasafnið.
Bókun fundar Afgreiðsla 162. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 95. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Vesturtanga á Siglufirði. Tillagan var kynnt þann 2. desember með opnu húsi á tæknideild Fjallabyggðar. Innan skipulagssvæðisins er gert ráð fyrir tveimur lóðum fyrir sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir eldsneyti. Lagt er til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þ.e. í Lögbirtingablaðinu og með áberandi hætti í dagblaði sem gefið er út á landsvísu. Athugasemdafrestur skal eigi vera skemmri en sex vikur frá birtingu auglýsingar.

Erindi samþykkt.
Bókun fundar Afgreiðsla 162. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 95. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013
Gunnar St. Ólafsson fyrir hönd Selvíkur ehf sækir um byggingarleyfi fyrir hótel að Snorragötu 3 á Siglufirði samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Einnig lagðar fram athugasemdir slökkviliðsstjóra vegna brunahönnunar hótelsins.

Nefndin samþykkir byggingarleyfi með fyrirvara um framkomnar athugasemdir slökkviliðsstjóra.
Bókun fundar
Til máls tók Ingvar Erlingsson.
Afgreiðsla 162. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 95. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013
Gunnsteinn Ólafsson eigandi Eyrargötu 4 á Siglufirði sækir um leyfi til breytinga á fyrrgreindri húseign samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Verður húsið klætt að utan, skipt um glugga og viðbygging norðan við húsið endurbyggð.

Nefndin samþykkir erindið.
Bókun fundar Afgreiðsla 162. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 95. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013
Ólafur G. Guðbrandsson sækir um leyfi til að halda búfé að Brimvöllum 3 í Ólafsfirði.

Erindi samþykkt.
Bókun fundar Afgreiðsla 162. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 95. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013
Lögð fram umsókn tíu fjáreigenda í Siglufirði sem standa að fjárbúinu Bóhem í Lambafeni um beitarhólf fyrir sauðfé sitt. Nú þegar hafa þeir fengið úthlutað sléttu sem er beint norður af fjárhúsinu en nú sækja þeir um að fá til afnota næstu sléttu fyrir ofan fjárhúsið.

Erindi hafnað.
Bókun fundar

Til máls tóku Guðmundur Gauti Sveinsson og Ingvar Erlingsson.
Tillaga Guðmundar Gauta Sveinssonar um að endurskoða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar var felld með 5 atkvæðum gegn 3 atkvæðum, Sólrúnar Júlíusdóttur, Egils Rögnvaldssonar og Guðmundar Gauta Sveinssonar. Sigurður Hlöðvesson sat hjá.
Tillaga Guðmundar Gauta Sveinssonar um heildarendurskoðun á úthlutun beitarlands í Siglufirði var samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum og er skipulags- og umhverfisnefnd falið verkefnið.

Afgreiðsla 162. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 95. fundi bæjarstjórnar með 5 atkvæðum gegn 3 atkvæðum, Sólrúnar Júlíusdóttur, Egils Rögnvaldssonar og Guðmundar Gauta Sveinssonar. Sigurður Hlöðvesson sat hjá.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013
Ólafur Snæbjörnsson og Kolbrún K. Gunnarsdóttir eigendur Eyrargötu 20 sækja um að fá að stækka lóð sína til norðurs samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

Lagður fram lóðarleigusamningur fyrir Eyrargötu 20 með stækkun á lóð til norðurs.

Nefndin samþykkir stækkun á lóð og framlagðan lóðarleigusamning.
Bókun fundar Afgreiðsla 162. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 95. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013
Tómas P. Óskarsson og Örvar Tómasson fyrir hönd Byls útgerðarfélags ehf sækja um afnotarétt af lóðinni Grundargötu 22 vegna starfsemi fyrirtækisins. Verður lóðin notuð fyrir bílastæði, geymslu fyrir kör og annað sem tilheyrir fyrirtækinu.

Lagður fram lóðarleigusamningur til handa Byl útgerðarfélagi ehf fyrir Grundargötu 22.

Nefndin samþykkir úthlutun á lóð til fyrirtækisins og framlagðan lóðarleigusamning.
Bókun fundar Afgreiðsla 162. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 95. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013
Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla á fráveitu Siglufjarðar, en í skýrslunni eru lagðar fram ýmsar aðgerðir til endurbóta á fráveitunni.
Bókun fundar
Afgreiðsla 162. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 95. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013
Lagt fram til kynningar erindi frá Mannvirkjastofnun þar sem sveitarfélög eru hvött til þess að koma upp virku gæðastjórnunarkerfi til þess að efla starfsemi byggingarfulltrúa.
Bókun fundar Afgreiðsla 162. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 95. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 4. desember 2013
Lögð fram tilkynning frá Vegagerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu Kvíabekksvegs og Kleifarvegar af vegaskrá.
Bókun fundar Afgreiðsla 162. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 95. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.