Til umsagnar - Tillaga til þingsályktunar um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum

Málsnúmer 1311032

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 323. fundur - 19.11.2013

Atvinnuveganefnd Alþingis hefur til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum, 14. mál. http://www.althingi.is/altext/143/s/0014.html
Á síðasta þingi, þ.e. í september sl., sendi atvinnuveganefnd Alþingis málið til umsagnar sem þá var 44. mál.
Nú hefur nefndin ákveðið að gefa þeim sem ekki sendu umsögn þá kost á að gera það nú eða veita umsagnaraðilum tækifæri til að bæta við umsögn ef tilefni þykir til.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 25. nóvember nk.
Erindi lagt fram til kynningar.