Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013

Málsnúmer 1311003F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 94. fundur - 13.11.2013

Bæjarstjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson gerði grein fyrir fundargerð.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Þrjú tilboð bárust í bifreiðina Benz Unimog árgerð 1965.
Bæjarfélagið hefur einnig fengið fyrirspurn frá öðru slökkviliði um yfirtöku á umræddri bifreið.
Bæjarráð áskildi sér rétt til að hafna öllum tilboðum og var það samþykkt.

Bæjarstjóra er falið að hefja viðræður við viðkomandi aðila.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Lagt fram bréf frá Síldarminjasafni Íslands ses. dags. 25. október 2013.
Í bréfinu er lagt til að ráðist verði í gerð bílastæða norðan við slökkvistöð bæjarfélagsins á Siglufirði vegna skorts á bílastæðum.
Bæjarráð tekur vel í framkomna tillögu og er hún í samræmi við áform bæjarfélagsins um framvindu verksins á næsta ári.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Lagt fram bréfi frá Skotveiðifélagi Ólafsfjarðar dags. 29. október 2013, þar sem fram koma óskar um styrk til geymslu á viðkvæmum og rándýrum rafeindabúnaði félagsins.
Bæjarráð samþykkir að taka umræddar kastvélakerrur til geymslu í Aravíti. Um er að ræða ca. 10 m2 geymslusvæði og færist styrkur bæjarfélagsins kr. 52.000.- á móti leigugjaldinu.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Lagt fram bréf frá Síldarminjasafni Íslands dags. 1. nóvember 2013, þar sem fram koma óskir um styrk til að byggja geymslu- og sýningarhús á lóð safnsins. Um er að ræða endurbyggingu á "Gæruhúsinu" sem staðsett var á Akureyri í samstarfi við Þjóðminjasafnið, en húsið var tekið niður árið 1999.
Bæjarráð telur rétt að taka þátt í verkefninu um kr. 500.000.- á ári í tíu ár, enda fáist umræddir styrkir frá Þjóðminjasafni, Húsafriðunarnefnd, ríkisstjórn og öðrum aðilum að upphæð kr. 74 milljónir króna.
Bókun fundar

Til máls tóku Sigurður Hlöðvesson, Egill Rögnvaldsson og Sigurður Valur Ásbjarnarson.

Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Bæjarráð samþykkir eftirtalda styrki.
1.  Til Hestamannafélagsins Glæsis - styrkur til greiðslu á fasteignaskatti.
2.  Til Hestamannafélagsins Gnýfara - styrkur til greiðslu á fasteignaskatti.
3.  Til Sævars Birgissonar, kr. 100.000.-
4.  Til Foreldrafélags Grunnskólans, kr. 55.000.-
5.  Til Björgunarsveitarinnar Tinds, kr. 500.000.-
Til sömu aðila, styrkur til greiðslu fasteignaskatts.
6.  Til Björgunarsveitarinnar Stráka kr. 500.000.-
Til sömu aðila, styrkur til greiðslu fasteignaskatts.
7.  Til Foreldrafélags Leikskála, kr. 55.000.-
8.  Til Foreldrafélags Leikhóla, kr. 55.000.-
9.  Til Herhúsfélagsins, styrkur til greiðslu fasteignaskatts.
10. Ólafsfjarðarkirkja, vegna kirkjugarðs kr. 200.000.-
11. Siglufjarðarkirkja, vegna barnastarfs kr. 75.000.-
12. Ólafsfjarðarkirkja, vegna barnastarfs kr. 75.000.-
13. Systrafélag Siglufjarðarkirkju, vegna lagfæringar á safnaðarheimili kr. 200.000.-
14. Skotveiðifélag Ólafsfjarðar, vegna geymslu á kastvélum í Aravíti, 52.000,-

Bæjarráð hafnaði neðantöldum umsóknum um fjármagn.
1.  Frá Betri byggð.
2.  Frá Kvennaathvarfi.
3.  Frá Stígamótum.
4.  Frá Neytendasamtökunum.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Niðurstaða bæjarráðs skráð sem trúnaðarmál.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Lagt fram bréf frá Dalvíkurbyggð dagsett 18. október um samstarf á sviði skólamála og félagsmála.
Bæjarráð tekur vel í framkomnar hugmyndir, en leggur áherslu á að slíkt samstarf verði til eins árs og að því loknu verði málið tekið aftur til skoðunar í takt við reynsluna.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Lagður fram viðauki er varðar uppgreiðslu lána umfram fjárhagsáætlun.  Að höfðu samráði við endurskoðendur leggur skrifstofu- og fjármálastjóri til að uppgreiðslu lána verði mætt með láni frá Aðalsjóði á sambærilegum kjörum og önnur innri lán sveitarfélagsins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að ofanritað verði samþykkt.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um vinnu tæknideildar er varðar skipulagslýsingu á svæði undir sjálfsafgreiðslustöð við Vesturtanga á Siglufirði.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Á síðasta fundi bæjarráðs var þessu máli frestað.
Bæjarstjóri lagði fram bréf frá Landslögum dags. 5. nóvember 2013.

Eftir  umræður og yfirferð var ákveðið að taka málið til afgreiðslu.
Fram hefur komið að tilboð voru opnuð þann 30. október s.l. í jarðvinnu vegna stækkunar á Grunnskóla Fjallabyggðar við Norðurgötu 10 Siglufirði.
Tvö tilboð bárust. kr. 4.482.000.- frá Bás ehf og kr. 3.302.900.- frá Árna Helgasyni ehf.
Meirihluti bæjarráðs leggur til við bæjarstjórn að tilboði Árna Helgasonar ehf verði tekið.
Meirihluti bæjarráðs vísar í álit lögmanns Landslaga þ
ar sem fram kemur að hvorki form eða efnisgallar séu á hinu kærða skipulagi enda hefur skipulagið verið yfirfarið að formi og efni af hálfu Skipulagsstofnunar sem gerði engar athugasemdir við skipulagið og féllst á að auglýsing um gildistöku þess yrði birt í B-deild Stjórnartíðinda svo sem gert hefur verið.
Engin rök eru því til að mati meirihluta bæjarráðs að stöðva framvæmdir.

Meirihluti bæjarráðs telur þó rétt að þar sem byggingarleyfi vegna skólans hefur verið kært, séu gerðir fyrirvarar við samningsaðila um frestun eða stöðvun framkvæmda, verði sveitarfélaginu gert að stöðva framkvæmdir.

Egill Rögnvaldsson óskar að bókað verði, að hann telji rétt að framkvæmdin fari ekki af stað fyrr en búið er að úrskurða í kærumálinu.
Bókun fundar

Til máls tóku Sigurður Hlöðvesson Egill Rögnvaldsson Sólrún Júlíusdóttir og Sigurður Valur Ásbjarnarson.
Sólrún Júlíusdóttir óskaði lagði fram eftirfarandi bókun.

"Eins og áður hefur komið fram í mínu máli þá hef ég ekki verið sammála því að nauðsyn sé að fara í svo kostnaðarsama framkvæmd sem meirihluti bæjarstjórnar hefur ákveðið að fara í þ.e. stækkun á Grunnskóla Fjallabyggðar, Siglufirði.
Þá vil ég láta koma fram sérstaklega að framkoma meirihlutans í garð íbúa þessa ágæta sveitarfélags sem í nálægð byggingarsvæðisins búa er algjörlega óásættanleg. Ég tel það lágmark að meirihlutinn sýni íbúum sveitarfélagsins virðingu og bíði þess vegna eftir úrskurði kærumálsins."

Í ljósi bókunar Sólrúnar Júlíusdóttur vill meirihluti bæjarstjórnar árétta það sem þegar hefur komið fram í bókun meirihluta í bæjarráði.

"Meirihluti bæjarstjórnar vísar í álit lögmanns Landslaga þar sem fram kemur að hvorki form eða efnisgallar séu á hinu kærða skipulagi enda hefur skipulagið verið yfirfarið að formi og efni af hálfu Skipulagsstofnunar sem gerði engar athugasemdir við skipulagið og féllst á að auglýsing um gildistöku þess yrði birt í B-deild Stjórnartíðinda svo sem gert hefur verið. Engin rök eru því til að mati meirihluta bæjarstjórnar að stöðva framvæmdir".

Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 6 atkvæðum.  Egill Rögnvaldsson, Guðmundur Gauti Sveinsson og Sólrún Júlíusdóttir greiddu atkvæði á móti.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Lagt fram til kynningar bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga dag. 23.október 2013. Þar er greint frá viðmiðum og lykiltölum sem nefndin hefur sett fram vegna samspils skulda, framlegðar og veltufjár frá rekstri.
Bókun fundar

Til máls tóku Sigurður Hlöðvesson og Sigurður Valur Ásbjarnarson.
Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Dagurinn 8. nóvember er helgaður baráttunni gegn einelti á Íslandi. Skorað er á vinnustaði og samfélög um að sýna samstöðu í verki og láta allar bjöllur, klukkur og skipsflautur hljóma í sjö mínútur frá kl. 13.00 til 13.07 næstkomandi föstudag.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Lagðar fram fundargerðir frá 16. júní og 31. október 2013.
Fundir haldnir á bæjarskrifstofunni í Ólafsfirði.
Bókun fundar
Til máls tók S. Guðrún Hauksdóttir.
Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Lögð fram dagskrá fyrir aðalfund Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, sem haldinn verður í Menningarhúsinu Hofi 5. nóvember nk.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Eyþings dags. 4. september, 27. september og 24. október 2013.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Lögð fram til kynningar fundargerð 809. fundar frá 25. október 2013.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 5. nóvember 2013
Lögð fram verkfundargerð frá 29.08.2013.
Bókun fundar Afgreiðsla 320. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.