Menningarnefnd Fjallabyggðar - 59. fundur - 5. desember 2012.

Málsnúmer 1212001F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 84. fundur - 12.12.2012

Formaður menningarnefndar, Bjarkey Gunnarsdóttir gerði grein fyrir fundargerð.

  • .1 1212003 Jól og áramót 2012
    Menningarnefnd Fjallabyggðar - 59. fundur - 5. desember 2012.
    Fræðslu- og menningarfulltrúi hefur gengið frá samkomulagi við alla aðila sem sjá um menningartengda viðburði vegna jóla og áramóta á vegum sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar menningarnefndar staðfest á 84. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
  • .2 1208088 Starfsmannamál í Tjarnarborg
    Menningarnefnd Fjallabyggðar - 59. fundur - 5. desember 2012.
    Menningarnefnd felur fræðslu- og menningarfulltrúa að afla gagna um umfang starfa og leigu á Tjarnarborg fyrir næsta fund nefndarinnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar menningarnefndar staðfest á 84. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
  • .3 1212007 Málefni upplýsingamiðstöðva í Fjallabyggð
    Menningarnefnd Fjallabyggðar - 59. fundur - 5. desember 2012.
    Samkvæmt bókun bæjarráðs frá 8. nóvember sl. eiga málefni upplýsingamiðstöðva að færast undir menningarmál. Menningarnefnd leggur til að forstöðumaður Bóka- og héraðsskjalasafns sjái um að skipuleggja starfið er varðar þrjá málaflokka, þ.e. bókasafn, héraðsskjalasafn og upplýsingamiðstöð. Ráðinn verði sumarstarfsmaður í 50% starf í fjóra mánuði ár hvert og að orlof starfsmanna taki mið af þessum breytingum.  
    Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar menningarnefndar staðfest á 84. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
  • .4 1211070 Uppsögn á starfi forstöðumanns Bóka- og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar
    Menningarnefnd Fjallabyggðar - 59. fundur - 5. desember 2012.
    Rósa Bjarnadóttir forstöðumaður Bóka- og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar hefur sagt upp starfi sínu. Menningarnefnd þakkar Rósu fyrir vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.
    Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar menningarnefndar staðfest á 84. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
  • .5 1212017 Umsókn til Menningarráðs Eyþings vegna 2013 - Stofn- og rekstrarstyrkur
    Menningarnefnd Fjallabyggðar - 59. fundur - 5. desember 2012.
    Fræðslu- og menningarfulltrúi hefur unnið umsókn um stofn- og rekstrarstyrk til Menningarráðs Eyþings vegna listaverkasafnsins. Sótt er um 1.000.000 kr.
    Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar menningarnefndar staðfest á 84. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
  • .6 1212018 Viðgerðir á listaverkum í eigu Fjallabyggðar
    Menningarnefnd Fjallabyggðar - 59. fundur - 5. desember 2012.
    Forvörður Listasafns Íslands mun heimsækja Fjallabyggð á næstunni og hefja vinnu við viðgerð á listaverkum í eigu Fjallabyggðar. 
    Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar menningarnefndar staðfest á 84. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
  • .7 1210093 Starfsemi safna 2011 - skýrsla um Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði
    Menningarnefnd Fjallabyggðar - 59. fundur - 5. desember 2012.
    Hagstofa Íslands hefur óskað eftir upplýsingum um Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði fyrir 2011. Búið er að senda skýrsluna.