Ósk um umsögn um athugasemdir Brynju I.Hafsteinsdóttur við útgáfu starfsleyfis fyrir efnistöku á Siglunesi

Málsnúmer 1211020

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 148. fundur - 05.12.2012

Sigurjón Þórðarson heilbrigðisfulltrúi f.h. Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra óskar eftir umsögn Fjallabyggðar um athugasemdir Brynju I. Hafsteinsdóttur f.h. nokkurra landeigenda á Siglunesi við útgáfu starfsleyfis fyrir efnistöku á Siglunesi.

 

Nefndin ítrekar bókun 133. fundar skipulags- og umhverfisnefndar þar sem fram koma skilyrði fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis og felur byggingarfulltrúa að svara erindinu.