Umsókn um leyfi fyrir bílastæði að Hávegi 5

Málsnúmer 1208078

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 143. fundur - 05.09.2012

Þórir Kr. Þórisson eigandi fasteignarinnar að Hávegi 5 sækir um leyfi til að gera bílastæði fyrir tvo bíla í suðvesturhorni lóðarinnar á mörkum lóðanna Hávegur 5 og Hávegur 7 samkvæmt meðfylgjandi teikningu og lýsingu. Fyrirliggjandi er samþykki aðliggjandi lóðarhafa.

 

Erindi samþykkt.