Samningur um rekstur og umsjón tjaldsvæða á Siglufirði sumarið 2012

Málsnúmer 1206001

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 260. fundur - 05.06.2012

Fyrir bæjarráði liggja drög að samningi við Baldvin Júlíusson um rekstur og umsjón tjaldsvæða í Siglufirði 2012.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samning með áorðnum breytingum sem ræddar voru í bæjarráði.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 269. fundur - 04.09.2012

Lögð fram greinargerð um rekstur og umsjón með tjaldsvæðum á Siglufirði í sumar.

Bréfritarar óska eftir því að taka verkið að sér næsta sumar. Bæjarráð tekur vel í þá hugmynd.

Ýmsum ábendingum um lagfæringar er vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.