Ósk um úthlutun á svæði undir mótorkrossbraut á Ólafsfirði

Málsnúmer 1205014

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 257. fundur - 15.05.2012

Vélsleðafélag Ólafsfjarðar óskar eftir að fá úthlutað svæði undir mótorkrossbraut vestan Óss í Ólafsfirði í samræmi við gildandi aðal- og deiliskipulag.

Bæjarráð samþykkir fram komna ósk og felur íþrótta og tómstundafulltrúa að útbúa samning í samræmi við reglur bæjarfélagsins sem tekur m.a. á þeim málum sem fagnefnd leggur áherslu á við yfirferð og skoðun á málinu.