Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 136. fundur - 18. maí 2012

Málsnúmer 1205008F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 79. fundur - 13.06.2012

Magnús A. Sveinsson varaformaður skipulags- og umhverfisnefndar gerði grein fyrir fundargerð.

• .1 1205008 Árabátar
Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 136. fundur - 18. maí 2012
Örlygur Kristfinnsson safnstjóri fyrir hönd Síldarminjasafns Íslands óskar eftir leyfi fyrir útisýningu á 4-5 smábátum við fjöruna framan við Bátahúsið - austan Snorragötu.

Nefndin samþykkir erindið en bendir á að festa þarf bátana niður svo ekki skapist slysahætta af þeim.
Bókun fundar Afgreiðsla 136. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 136. fundur - 18. maí 2012
Haraldur Marteinsson óskar eftir leyfi til að gera útlitsbreytingar á íbúðarhúsnæði á Þóroddstöðum skv. meðfylgjandi teikningu.

Erindi samþykkt.
Bókun fundar Afgreiðsla 136. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 136. fundur - 18. maí 2012
Steingrímur J. Garðarsson og Annar M. Jónsdóttir eigendur að Fossvegi 35 ásamt eigendum Fossvegar 33, óska eftir aðstoð sveitarfélagsins vegna vatnsaga í lóðum þeirra í bakkanum neðan við Hólaveg.

Þar sem nefndin telur að vatnsagin gæti orsakast af byggingu snjóflóðavarnargarða er tæknideild falið að fá óháðan aðila í samráði við Ofanflóðasjóð til að skoða málið.
Bókun fundar Afgreiðsla 136. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 136. fundur - 18. maí 2012
Örlygur Kristfinnsson safnstjóri hvetur til þess að innkeyrslustútur verði settur í gangbraut við landfyllingu austan Róaldsbrakka.
Erindi samþykkt.
Bókun fundar Afgreiðsla 136. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 136. fundur - 18. maí 2012
Óskað var umsagnar Húsafriðunarnefndar vegna umsóknar um útlitsbreytingar á Lindargötu 2C, Siglufirði.
Umsögn hefur borist frá Húsafriðunarnefnd þar sem fagnað er þeirri ætlun að færa húsið nær upprunalegri mynd, og ekki gerð athugsemd við erindið.

Erindi samþykkt.
Bókun fundar Afgreiðsla 136. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 136. fundur - 18. maí 2012
Samþykkt um kattahald í Fjallabyggð var send Umhverfisráðuneyti til umsagnar, þar sem lagt var til að gera ákveðnar breytingar á samþykktinni.

Erindi samþykkt.
Bókun fundar Afgreiðsla 136. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 136. fundur - 18. maí 2012
Hálfdán Sveinsson fyrir hönd Herhúsfélagsins sækir um leyfi til að setja upp skilti á mörkum lóðar Norðurgötu 7 og stígs sem liggur að Herhúsinu.
Meðfylgjandi er teikninga af skilti ásamt samþykki eiganda Norðurgötu 7.

Erindi samþykkt.
Bókun fundar Afgreiðsla 136. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 136. fundur - 18. maí 2012
Dúi J. Landmark óskar eftir að fá að stækka áðursamþykkta forstofu við tengibyggingu milli húsa að Þormóðsgötu 20, Siglufirði skv. meðfylgjandi teikningum.

Erindi samþykkt.

Bókun fundar Afgreiðsla 136. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 136. fundur - 18. maí 2012
Lögð fram tillaga að skipulagi gönguleiða, athafnasvæða og lyftarabrauta á hafnarsvæði Fjallabyggðar á Siglufirði.
Hafnarstjórn samþykkir einróma tillögu hafnarstjóra og telur rétt að vísa málinu til skipulags- og umhverfisnefndar.
Nefndin taki afstöðu til einstefnu og akstursstefnu og fái leyfi lögreglustjórans á Akureyri til þeirra breytinga sem fram koma í tillögunni.

Erindi samþykkt.
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga var lögð fram af Ingvari Erlingssyni, Bjarkey Gunnarsdóttur, Helgu Helgadóttur, Ólafi Helga Marteinssyni, Magnúsi A Sveinssyni og Margréti Ósk Harðardóttur.

"Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkir að að gatan við smábátahöfnina á Siglufirði verði einstefnu vistgata í samræmi við tillögu fagnefnda.
Að höfðu samráði við lögreglu er yfirhafnarverði heimilt að loka götunni tímabundið. Lögð er áhersla á takmarkanir á umferð frá kl. 14.00 - 18.00 dag hvern, en þá er mikið álag á svæðinu m.a. vegna löndunar á sjávarafla."

Tillaga samþykkt með 9 atkvæðum.