Álagning gatnagerðargjalds vegna Hólavegar 65 Siglufirði

Málsnúmer 1203045

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 251. fundur - 20.03.2012

Um er að ræða ósk um úrskurð bæjarráðs og heimild til lækkunar á gjöldum vegna 18 m2 viðbyggingar á húsnæði við Hólaveg 65.

Bæjarráð vísar í reglur og lög um gatnagerðargjöld og bendir á 5. gr. sem fjallar um almenna lækkunarheimild sjá og 4. lið vegna stækkunar íbúðarhúss, sjá þar lið 3.

Bæjarráð samþykkir að innheimt skuli afgreiðslu- og byggingarleyfisgjald, en ekki gatnagerðargjald.