Gátlisti og umræðuskjal nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins

Málsnúmer 1108043

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 226. fundur - 23.08.2011

Lagður fram til kynningar gátlisti og umræðuskjal nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins frá Innanríkisráðuneyti dags. 10.08.2011.
Nefndin leggur áherslu m.a. á að sveitarstjórnarmenn svari gátlistanum hver fyrir sig á slóðinni http://bit.ly.oemAb en þar er vinnuskjal fyrir bæjarfulltrúa.
Bæjarráð hvetur bæjarfulltrúa Fjallabyggðar til að svara umræddum gátlista hið fyrsta og eigi síðar en 10. september n.k.